Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2008

Myndir af Ástrós Erlu

 

Nýfædd þann 10. apríl 2004: 

100_0022

1. árs:

120_2004

2. ára:

139_3977

3. ára:

IMG_20070407_2768

4. ára (mynd tekin á Öskudag):

IMG_20080206_8360copy1

Ég er auðvitað svakalega hlutdræg en hún er virkilega fallegt barn Wink


Afmælisprinsessa!!!

Í dag, 10. apríl á hún Ástrós Erla Markhus Viðarsdóttir, dóttir mín, afmæli InLove
Hún er orðin 4. ára gömul og mér finnst það svo skrítið. Finnst eins og hún hafi fæðst í gær bara og í dag er hún orðin svo stór...
Við Viðar fórum inn til hennar í morgun kl. 6.30 og vöktum hana með afmælissöng og pökkum. Pökkuðum gjöfinni hennar inn í 2 pakka og band utan um og svo helíumblaðra bundin við pakkann líka Wink
Þetta fannst henni æðislegt og hún var svakalega ánægð með gjöfina frá okkur.
Við keyptum handa henni fleecepeysu, 2 leggingsbuxur, sumarkápu með Dóru, Dórusandala og Fríðu barbídúkku.
Við fórum svo með hana í leikskólann þar sem bíður hennar að baka afmæliskökuna sína og halda upp á daginn með Kanínudeildinni á Víðivöllum.
Hún er svo búin að ákveða að kvöldmaturinn í kvöld verður píta með tilheyrandi meðlæti og eftirréttur sem mun að öllum líkindum verða ís ef ég þekki dóttur mína rétt Smile
Hún bíður svo spennt eftir því að fá fleiri pakka en mamma mín á eftir að koma með gjöf til hennar seinnipartinn í dag Grin
Ég skal svo setja inn mynd af prinsessunni fljótlega.


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband