Barþjónninn veit allt!!!
27.2.2008 | 21:53
- drykkurinn segir allt
Áður en þú pantar drykk á barnum ættirðu að lesa þetta vandlega. Sjö barþjónar frá New York voru spurðir að því hvort þeir gætu sagt til um persónuleika kvenna eftir því hvað þær pöntuðu sér á barnum. Þrátt fyrir að vera spurðir í sitt hvoru lagi voru svörin nánast þau sömu.
Niðurstöðurnar:
Drykkur: Bjór
Persónuleiki: Óformleg, ekki þurftafrek; jarðbundin.
Nálgun: Skoraðu á hana í billjard.
Drykkur: Hrærðir drykkir
Persónuleiki: Óáreiðanleg, síkvartandi, skapraunandi; alveg óþolandi.
Nálgun: Forðastu hana nema þú viljir vera skósveinninn hennar.
Drykkur: Blandaðir drykkir
Persónuleiki: Þroskuð, fáguð, þurftafrek, horfir í hvert smáatriði; veit upp á hár hvað hún vil.
Nálgun: Þú þarft ekki að nálgast hana. Ef hún hefur áhuga mun hún senda ÞÉR drykk.
Drykkur: Léttvín (Zinfandel hvítvín undanskilið)
Persónuleiki: Íhaldssöm og smekkleg; veraldarvön en fjörkálfur.
Nálgun: Segðu henni að þú elskir að ferðast og njóta rólegra kvöldstunda í góðra vina hópi.
Drykkur: Zinfandel hvítvín
Persónuleiki: Einföld; telur sig vera smekklega og veraldarvana en hefur í raun enga hugmynd hvað það er.
Nálgun: Láttu henni finnast hún klárari en hún í raun er
þetta ætti að vera einfalt skotmark.
Drykkur: Skot
Persónuleiki: Kann því vel að hanga með hóp stráka og er mikið fyrir að vera vel drukkin
og nakin!
Nálgun: Auðveldasta skotmarkið á staðnum. Þú hefur heppnina með þér. Gerðu ekkert nema bíða, en ekki reita hana til reiði!
Drykkur: Tequila
Engin þörf á frekari skýringum - segir allt sem segja þarf.
SVO, smá viðauki um karlmennina - en aðförin að strákum er alltaf MJÖG einföld og skilvirk.
Innlendur bjór: Hann er fátækur og langar að ríða.
Innfluttur bjór: Hann kann að meta góðan bjór og langar að ríða.
Vín: Hann lifir í þeirri von að vínið gefi honum veraldarvant yfirbragð sem auki líkurnar á að fá á broddinn.
Viskí: Honum er skítsama um allt nema að fá á broddinn.
Tequila: Hann telur sig eiga sjens í tannlausu þjónustukonuna.
Zinfandel hvítvín: Hann er hommi.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.